Grund hjúkrunarheimili - 108 Reykjavík - Iceland
Mörk hjúkrunarheimili óskar eftir metnaðarfullum og áhugasömum iðjuþjálfa til starfa. Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf fyrir einstakling sem býr yfir hugmyndaauðgi, frumkvæði og góðum samskiptahæfileikum. Greitt er eftir kjarasamningi Iðjuþjálfafélags Íslands og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Hæfnikröfur BSc próf eða sambærilegt próf í iðjuþjálfun Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni Íslenskukunnátta skilyrði Fríðindi í starfi Stytting vinnuvikunnar. Aðgangur að heilsustyrk. Öflugt starfsmannafélag Á Grundarheimilunum er unnið samkvæmt Eden hugmyndafræðinni. Þar vinnur stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum af alúð. Vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið. Gott er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um starfið veitir: Theodóra Theodórsdóttir mannauðsstjóri, tedda@grund.is Við hlökkum til að heyra frá þér!